A Asus4 A Asus4 A Asus4 Kalt blés norðanvindur, janúarmorgun D A er Agnes og Friðrik lögðu af stað. A Asus4 Kaldur stóð bændaskarinn þeim var vorkunn. D A Skelfdir horfðu á axarinnar blað. E D Dsus4 Natans bróðir fylltur beisku hatri. C#m Bm A Hönd Friðriks köld sem á ná. E D Dsus4 Presturinn hvíslar „ljúkum þessu af í snatri. C#m Bm A Höggðu vel svo drottinn megi sjá“. A Asus4 Friðrik fölur stóð uppí vindinn. D A Orð prestsins féllu frosna jörðu á. A Asus4 Bændur stundu: „Stór er syndin“. D A Er Friðrik lagði höfuð sitt stokkinn á. E D Dsus4 Tryllt af ótta Agnes frá sér barði C#m Bm A er höfuð Friðriks búknum rúllaði frá. E D Dsus4 Blóðhlaupin augu, slef úr vitum hennar lagði C#m Bm A Rósin Kiðjaskarðs varð eins og hrímgrátt strá. A Asus4 Breiðabólsprestur með konungs snaps í hendi D A skipaði Agnesi að standa, en Agnes lá. A Asus4 Yfirvald Blöndal böðlinum brennivín sendi D A til að bægja efanum sálu hans frá. E D Dsus4 Hjalandi eins og smábarn á dauðann hún starði. C#m Bm A Með afli þeir létu hana krjúpa fótum hans hjá. E D Dsus4 Blöndal keikur stóð á hæsta garði, C#m Bm A og öskraði: „Bændur lítið upp, þið skuluð fá að sjá“... A Asus4 Natans bróðir allan sinn styrk í höggið lagði. D A Blóð og þvag slettist frosinn mel á. E D Dsus4 Bændaskarinn stundi þungt, en í þetta sinn þagði. C#m Bm A Þegar höfuð þeirra á stöngum fóru þar hjá. Asus4 A